Það er að ýmsu að huga áður
en selja skal fasteign...
Þegar þú setur fasteignina þína í sölu þá viltu fá hámarksverð fyrir eignina þína miðað við markaðsaðstæður. Til þess að ná sem bestum árangri við sölu þá skiptir höfuðmáli að byrja á faglegu verðmati á fasteigninni.
Að bóka fasteignaverðmat hér er frítt og án skuldbindingar um sölu. Löggiltur fasteignasali gefur þér raunhæft mat á líklegu söluverði á fasteigninni þinni, miðað við sölu í dag.
Markaðsverð fasteigna er stöðugt að breytast eftir því hvernig framboð og eftirspurn er á hverjum tíma. Því getur söluverð á tiltekinni tegund fasteignar verið breytilegt og háð ýmsum atriðum.
Við skoðun fasteignasala geta ýmis atriði komið fram sem kunna að skipta máli varðandi endanlegt söluverð. Það getur því borgað sig að fá slíkar ábendingar tímanlega, áður en eign fer í sölu.
Frítt fasteignaverðmat frá löggiltum fasteignasala ásamt ráðgjöf um söluferlið allt frá undirbúningi til afhendingar er því tilvalið fyrsta skref fyrir alla sem eru að hugleiða að selja fasteign.
UMSAGNIR
UMSAGNIR ÞEIRRA SEM ÞEGIÐ HAFA ÞJÓNUSTUNA
VERÐMAT
HVERNIG ER FASTEIGN VERÐMETIN ?
Sjónskoðun
Fasteign er skoðuð á staðnum ásamt eiganda sem veitir allar upplýsingar um ástand og endurbætur eftir bestu vitund. Allt er skoðað sem hægt er með eigin augum en ástand annarra hluta eins og lagna og frárenslis verður að áætla út frá aldri.
Seldar eignir
Upplýsingar um seldar eignir í nágrenninu á undanförnum 12 mánuðum eru skoðaðar. Farið er nánar í samanburðareignir en það eru fasteignir sem komast sem næst umræddri fasteign að stærð ásamt öðrum eiginleikum. Tekið er mið af ásettu verði á svipuðum eignum sem eru nú eða voru nýlega í sölumeðferð.
Þinglýst gögn
Skoðuð eru öll þinglýst gögn er snúa að umræddri fasteign og innihalda upplýsingar sem geta skipt máli við verðmat eignar.
Önnur þinglýst gögn eru einnig skoðuð og má þar nefna nýlega kaupsamninga í nágrenninu og fleira ef þörf er á.
RÁÐGJÖF
HVERS VEGNA SÖLURÁÐGJÖF ?
Sérþekking
Við búum yfir mikilli þekkingu þegar kemur að sölu fasteigna. Það þýðir öllu því sem snýr að sölunni bæði í praktískum skilningi og einnig lagalegum skilningi.
Mikilvægt er að seljendur séu upplýstir um þá lagalegu ábyrgð sem fylgir því að selja fasteign ásamt því að vita hvernig best er að tryggja sína hagsmuni í slíkum viðskiptum.
Undirbúningur
Við veitum viðskiptavinum okkar góða ráðgjöf og lista yfir mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga við undirbúninginn.
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma við undirbúning þannig að framsetnig eignarinnar sé sem best fyrir sölu.
Markmiðið er að væntanlegur kaupandi hafi sem minnst að athuga af smáatriðum og sjái sig flytja inn með sem minnstri fyrirhöfn.
Fagmennska
Að vera með fagmennsku í fyrirrúmi er okkar mottó. Við einsetjum okkur að vera heiðarlegir og vandvirkir í öllum verkefnum. Við erum meðvitaðir um þá ábyrgð sem þessu starfi fylgir og viljum því ávinna okkur traust viðskiptavina okkar með því að sýna það í verki. Góður orðstír er gulls í gildi.
ÞJÓNUSTA
HVAÐA ÞJÓNUSTA SKIPTIR MESTU MÁLI ?
Markaðssetning
Framsetning á eigninni er það fyrsta sem væntur kaupandi sér. Skiptir því máli að eignin sé mynduð af fagljósmyndara og að textalýsing á fasteigninni sé vönduð og dragi fram fram helstu kosti eignarinnar. Að greina líklegasta kaupandann skiptir svo öllu máli eða þann markhóp sem líklegastur er til að kaupa eignina. Með miðuðum birtingum á vefmiðlum og samfélagsmiðlum getum við náð til rétta hópsins og þar með aukið líkur á sem bestu niðurstöðunni.
Opin hús / Sýningar
Misjafnt getur verið eftir eignum hvort hentugt sé að halda opið hús eða vera með bókaðar sýningar. Við metum það yfirleitt eftir eftirspurn hverju sinni ásamt því að líta til stærðar eigna. Við erum ávallt til taks til að sýna eignir eftir þörfum, en auðvitað í góðu samráði við seljendur.
Eftirfylgni
Einn mikilvægasti þáttur í starfi sölumanns er að fylgja vel eftir fyrirspurnum og skoðunum á eignum. Oft geta ákveðin atriði staðið í vegi fyrir því að áhugi hafi myndast við skoðun svo það er mikilvægt að komast að þeim ef vera skyldi að þau séu léttvæg eða miskilningur.
FASTEIGNASALAR
NOKKUR ORÐ UM OKKUR
Aðalsteinn er löggiltur fasteignasali sem hefur starfað við beina sölumennsku og ráðgjöf til fólks og fyrirtækja í rúm 25 ár við mjög góðan orðstír. Áður en hann snéri sér að fasteignasölu hafði hann starfað við beina sölu og ráðgjöf á vátryggingum til einstaklinga og fyrirtækja í þó nokkur ár. Hann hefur svo langa reynslu af markaðsráðgjöf og auglýsingasölu til fyrirtækja.
Aðalsteinn lauk löggildingarnámi til fasteignasala við EHÍ 2018. Einnig hefur hann klárað BS nám í viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál árið 2014 við Háskólann á Bifröst. Að auki er hann svo með diploma í vef og prenthönnun frá Margmiðlunarskóla íslands og ásamt diploma í frumkvöðlafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Margrét Rós er löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur með tæplega 30 ára reynslu á sviði sölu og markaðsmála. Áður en hún snéri sér að fasteignasölu hafði hún starfað sem sölustjóri og markaðsstjóri ásamt að hafa verið með eigin rekstur um tíma. Undanfarin ár hef hún starfað sem sölu- og markaðsstjóri með góðum árangri. Margrét hefur einnig brennandi áhuga á öllu sem við kemur hönnun og stundaði nám í vöruhönnun á yngri árum. Hún leggur metnað í góð samskipti við viðskiptavini sína ásamt að veita þeim faglega og framúrskarandi þjónustu.
Margrét Rós lauk löggildingarnámi til fasteignasala við EHÍ 2018. Einnig hefur hún lokið BS námi í viðskiptafræði árið 2011 og MS.c í Alþjóðaviðskiptum og MA í Skattarétti árið 2013 frá Háskólanum á Bifröst.